Það er alltaf gott að getað vitnað í einhvern annan sér vitrari. Mér finnst þessi spakmæli mjög góð því maður getur víst verið með rætur og flogið.
En það er allt gott að frétta af mér. Var að syngja á tónleikum í gær. Við fluttu Petite Missa Solinelle eftir Rossini og söng ég sópran sólóin og kórinn var Bach kórinn í Nijmegen, mjög fínn kór. Við vorum öll sólistar úr skólanum og þar á meðal hann elsku Stefán. Það gekk rosalega vel og ég er mjög ánægð með þetta. Man ekki mikið eftir tónleikunum en það er víst best þegar það er þannig. Svo byrjar skólinn með reglulegri kennslu á morgun. Kammerkórinn er byrjaður að æfa Dallapiccola óperuna sem við erum að fara að taka þátt í í mars í hollensku óperunni. Þetta er mjög spennandi og krefjandi verkefin og ekki skemmir fyrir að komast með litlu tána inn í óperuna!
Ég er ótrúlega vel stefnd fyrir framhaldið og hlakka mikið til að vitna í fleiri spekinga og að segja ykkur hvernig lífið gengur hérna hjá mér á háaloftinu í Amsterdam.
Þangað til næst!
Ykkar Þórunn Vala
sunnudagur, 31. janúar 2010
fimmtudagur, 24. desember 2009
Gleðileg jól
Megi guð gefa ykkur, elsku vinir, gleðileg jól
og yndislegt nýtt ár.
og yndislegt nýtt ár.
Með fullt af nýjum ævintýrum og stórum sigrum.
Björtum tímum og gleði í hjarta.
Takk fyrir að fylgjast með mér á árinu.
Ástarkveðjur
Ykkar Þórunn Vala
Björtum tímum og gleði í hjarta.
Takk fyrir að fylgjast með mér á árinu.
Ástarkveðjur
Ykkar Þórunn Vala
sunnudagur, 22. nóvember 2009
allt og ekkert
Mér finnst sunnudagar yndislegir dagar. Það er eitt af því besta sem ég veit að vera bara heima á sunnudegi, fá mér kaffi og ristað brauð. Baka kannski pönnukökur og kveikja á kerti. Þessi sunnudagur er búinn að vera yndislegur. Lottie kom í heimsókn og við vorum að spila víólu dúetta. Það var alveg dásamlegt, við erum nú ekki þær bestu en við komumst í gegnum þetta. Held að það hafi verið mjög skondið að vera fluga á vegg. Við erum að fara að spila fyrir hinar stelpurnar í bekknum á þriðjudaginn en þá ætlar hún að hafa svona söng dag heima hjá sér.
Annars gengur lífið sinn vana gang og er Erla hérna í heimsókn hjá mér. Alltaf skemmtilegt að fá gesti og gera svona ferðamanna hluti. Góð afsökun til að fara út að borða og svona. Það er komin mikil jólastemming í mig enda nóvember næstum á enda. Ætla að fara að hlusta á jólalögin að fullum kraftir á þriðjudaginn á afmælinu hennar Gróu.
Skólinn gengur vel og ég er ótrúlega ánægð með allt saman en á örugglega eftir að segja þetta í hverju einasta bloggi fram að jólum. Ég hlakka órúlega mikið til að koma heim!

laugardagur, 14. nóvember 2009
Skemmtilegir tímar!
Loksins frí helgi og ég get bara slakað á heima hjá mér. Lífið er yndislegt. Halldóra fór á fimmtudaginn og það var yndislegt að hafa hana hérna hjá mér. Ég var líka svo heppin að hún var með myndavél svo ég get loksins setti inn nokkrar myndir frá lífinu hérna í Amsterdam og ætla að láta þær tala sínu máli.

Auðvitað fórum við vinkonurnar nokkrum sinnum á kaffihús!

Matur á Sluisstraat, alltaf jafn eðlilegt fólk! Og svo er mynd af mér og herberginu mínu (jólaserían komin upp)

...Og fleiri kaffihúsaferðir með fríðu föruneyti, Elmari og Eyva!

Ein mynd frá Yo opera æfingu fær að fylgja. Æfingarnar voru mjög snemma á laugardags og sunnudags morgnum og því þurfti mikið kaffi og langar pásur!
Svo koma hér tvær myndir í lokin síðan á Garðtónleikunum í haust í Belgíu.

miðvikudagur, 11. nóvember 2009
Lottó auglýsing!
Var held ég búin að tilkynna það hér að hafa verið að syngja inn á auglýsingu og hún er loksins komin. Læt linkinn fylgja með. Annars er allt gott að frétta. Engar fréttir góðar fréttir. Kem með myndir frá ævintýri okkar Halldóru í Amsterdam sem fyrst!
Kossar og knús
http://www.creatie.nl/creatie/select/expression/49902.do
Kossar og knús
http://www.creatie.nl/creatie/select/expression/49902.do
föstudagur, 6. nóvember 2009
Subscribe to:
Posts (Atom)

Örópera gærkvöldsins að viðstöddu fjölmenni og sjálfum borgarstjóra Utrecht á mikið erindi við okkur frjálshyggjuviltan lýðinn. Ómstríð hljómasambönd sóprans, mezzos, baritóns, altflautu og sellós minntu á þann óhugnalega vef örlaganornanna sem margar vestrænar þjóðir hafa flækst í undanfarin misseri. Hvað er fallið annað en hátt og hart eftir syndasund græðginnar!? Stigagangur félagsmiðstövar Utrecht var hugvitsamlega nýttur sem umgjörð fyrir síðustu andadrætti veðbréfabraskaranna tveggja, sungin af mezzo og baríton. Þau hölluðu sér fram af handriðunum með skemmtilegum víratilfæringum á jakkafötunum með þeim árangri að manni fannst þau vera í frjálsu falli. Á gólfinu fyrir neðan var sakleysisleg yngismey í ljósbláum silkikjól sem hafði hlotið sömu örlög og biðu braskaranna. Ljóst sítt hárið hafði flyksast í allar áttir og hún lá þarna í feygð sinni eins og sakleysið og fegurðin sjálf, myrt af ofurhugsjónum nútímans. Stúlkan, sem sungin var af sópran, gekk aftur og söng draugkenndar strófur til fallandi jakafataplebbanna. Óp, viðskiptaleg gildismöt færð í tóna og hvassir og draumkenndir tónar sellósins og altflautunnar gáfu okkur innsýn inn í heim sem flestum er ókunnugur en hefur áhrif á okkur flest.
Bestu þakkir fyrir frábæran performans.