laugardagur, 31. október 2009














Mynd sem hann yndislegi Ivan minn tók í gær á tónleikunum! Ég var ekkert smá ánægð með kvintettinn minn þau eru frábær og ætlum við að halda áfram að vinna saman í framtíðinni, mjög spennandi!

miðvikudagur, 28. október 2009

"There was once a PIG. He was an ordinary Pig in all ways. But one thing did SET him APART. This thing was his DISTASTE for the MUMBLING and GRUMBLING that is the NATURAL Way with pigs. "I know" ... thought the pig. I shall become an EXTRAORDINARY Pig! I shall see the best in everyone and the best in everything. I shall become THE PIG of HAPPINESS! "


Ég elska þessa bók. Mér finnst að hún eigi að vera til á hverju einasta heimili. Það er svo fallegur boðskapur í þessu öllu saman. Auðvitað veit maður þetta vel en svínið gerir þetta svo skemmtilegt. Allavega, ekkert sérstakt að frétta. Bara sama gamla sagan, æfingar, skóli og vinna. Helgin var algjörlega undirlögð af Yo opera og þetta er allt að smella saman og mjög skemmtilegt! Svo eru stelpurnar komnar og ég sé þær á morgun, það verður yndislegt. Ég hlakka mikið til tónleikanna á föstudaginn, þeir verða örugglega mjög flottir.
Læt vita hvernig fer.
Ástarkveðjur
Tósla pósla

fimmtudagur, 22. október 2009

gaman að vera til!

Jæja allt að gerast! Er búin að taka ákvörðun að vera ekki ein af þessum manneskjum sem eru alltaf að tala um hvað þær eru uppteknar! Geta bara ekki gert neitt af því að það er svo mikið að gera. Hef svolítið orðið vör við þetta hérna í Hollandi og held að það sé líka af því að það þarf alltaf að ákveða allt með svo miklum fyrirvara. Það er alls ekki hægt að vera spontanious. En það er samt nóg að gera hjá mér og ég elska það. Líður aldrei betur en þegar ég hef nóg að gera. Er að fara ð taka þátt í óperuhátíð sem heitir Yo Opera og er ég að taka þátt í nútímaóperu um " the Financial crisis" mjög viðeigandi að vera Íslendingur í þessu hlutverki en ég er samviska bankamannsins. Finnst þetta mjög fyndið. Þetta verður bara mjög skemmtilegt. Það er allt á fullu við undirbúning fyrir tónleikana í næstu viku og það gengur bara vel. Og svo er ég að fá góða gesti því Halldóra og Hildur koma í næstu viku og svo kemur hann Eyvi minn þann 1. nóv, þvílík veisla af góðu fólki!

Annars gengur bara allt vel. Ég er farin að finna fyrir því að haustið er komið og svo breytist klukkan á sunnudaginn og þá kemur skammdegið en þa´kveiki ég bara á kertum og hef það kósi!
Læt vita hvað það er mikið að gera næst!
Kusjes een knuffel!

þriðjudagur, 13. október 2009

Ef ástin væri..

...leyndarmál þá væri ég fleygur fugl. Ætla reyndar ekki að segja ykkur að ég sé ástfangin en bara að mér líður vel. Var loksins að flytja hjólið mitt til Amsterdam og er farin að hjóla aftur. Það er aðeins öðruvísi en í Utrecht enda pínulítið stærri borg. Er ótrúlega glöð að vera loksins búin að þessu, því fyrr því betra. Svo er bara að villast aðeins og þá er þetta komið. Það er svo gott þegar maður finnur að nýr staður er orðinn heima og ég er búin að finna þessa tilfinningu hérna á Sluistraat. Hef ekki fundið þessa tilfinningu síðan ég bjó á Vesturgötunni þó svo að auðvitað er Foldasmárinn alltaf heima en samt heima hjá mömmu og pabba. Allar þessar tilfinningar, jeminn!!!
Ég átti yndiselga helgi, Nonni átti afmæli á sunnudaginn og ég var að baka allan laugardaginn. Get ekki neitað því að mér þyki þetta ekki skemmtilegt. Það er ótúlega góð tilfinning að baka og hugsa ekki um neitt, tæma hugann. Svo komu múgur og margmenni í boðið og þetta bara eins og á sveitabæ með upprúlluðum pönnukökum og fíneríi!
Svo er bara að takast á við vikuna og fyrstu æfingna á Messien á föstudaginn, hlakka mikið til en þetta er algjört torf. Verð að viðurkenna að ég hefði ekki valið þetta sjálf en þetta er ótúlega mikil áskorun. Sjáum hvað gerist.
Set inn tilvitnun í Heimsljós svona af því að ég vara að tala um sveitabæinn!

"Í þessu hvítskúraða eldhúsi með opnum glugga
sínum bjó í senn einhver almennur virðuleiki og ópersónulegur hlýleiki,
sem gerði mann sælan í miðju andstreymi lífsins og sorg. Hinir
vingjarnlegu rósóttu diskar í rekknum, þvaran á veggnum, bláköflótta
gluggablæan, prjónarnir konunnar í gluggakistunni, volgran frá
eldavélinni, kisa, ángan af kaffi, túnglsljósið, sjórinn, - þetta var
kanski ekki margra króna virði ef átti að selja það, en alt um það, það var veröldin einsog hún er fegurst og best."
Heimsljós - Höll sumarlandsins, 20. kafli

Elsdhúsin eru alltaf hjarta heimilisins. yndislegt hvað hversdagleikinn getur verið fallegur.

miðvikudagur, 7. október 2009

Nýtt blogg, nýtt líf, ný borg.

Ég er komin aftur. Hef ákveðið að halda áfram að blogga. Það er svo ótrúlega gott að skrifa niður hugsanir sínar svona öðru hvoru og auðvitað láta alla vita hvernig gengur í stórborginni. En ég er semsagt flutt til Amsterdam og er því orðin stórborgardama enn á ný. Upplifði meira að segja Sex and the city augnablik í síðustu viku. Svaf næstum því yfir mig og hljóp út til að ná trammanum niðrá Centraal til að fara í söngtíma í Purmerend en það var trukkur á götunni og tarmminn reyndi að komast framhjá en því miður skrapaði alla hliðina á bílum, úps! Bílstjórinn var ekki glaður. Og hvað átti ég þá að gera, allavega ekki í boði að koma of seint í söngtíma svo ég bara steig út á götu og veifaði leigubíl í bleiku kápunni minn á háu hælunum. Ég legg þetta nú ekki í vana minn en þegar neyðin er sem mest ... alltaf sama dramatíkin í mér!

Það er allt gott að frétta af mér. Ég er búin að koma mér mjög vel fyrir í Jónshúsi og skólinn kominn á fullt. Ég er að vinna mikið í skólanum og svo eru farin að detta inn nokkur verkefni svona að öðru hvoru sem er alveg frábært. Mér er farið að líða eins og ég lifi "eðlilegu" lífi hérna. Ekki bara skólinn sem er svo verndað umhverfi en auðvitað miklar kröfur. Núna erum við að byrja á kammermúsik verkefni og er ég að flytja undurfagurt verk eftir Chausson, læt linkinn fylgja fyrir þá sem vilja hlusta :

http://www.youtube.com/watch?v=d2sJwkKmuYs&feature=related

Það eru svo tónleikar 30. okt og hlakka ég rosalega mikið til. Er líka að taka þátt í Messien verkefni og stjórnandi Nederlands kammerkoor kemur að hlusta svo hver veit hvað gerist. Söngtímarnir ganga rosalega vel og aukafögin eru líka skemmtileg. Mikið af tungumálum og skemmtilegum áföngum en verð nú að viðurkenna að analysis er ekki mitt uppáhaldsfag en ég læt mig hafa það. Er svo byrjuð að lesa nýja bók og það er svo flott tilvitnun í upphafi sem ég læt fylgja með.

" For yesterday is but a dream,

And tomorrow is only a vision;

But today well lived.

Makes every yesterday a dream of happiness,

And every tomorrow a vision of hope.

Look well therefore, to this day. "

Ætla að hafa þennan texta sem mottóið mitt!
Hlakka til að halda áfram að segja ykkur frá ævintýrum mínum í Hollandi!
Þangað til næst.

Ykkar Þórunn