Jæja allt að gerast! Er búin að taka ákvörðun að vera ekki ein af þessum manneskjum sem eru alltaf að tala um hvað þær eru uppteknar! Geta bara ekki gert neitt af því að það er svo mikið að gera. Hef svolítið orðið vör við þetta hérna í Hollandi og held að það sé líka af því að það þarf alltaf að ákveða allt með svo miklum fyrirvara. Það er alls ekki hægt að vera spontanious. En það er samt nóg að gera hjá mér og ég elska það. Líður aldrei betur en þegar ég hef nóg að gera. Er að fara ð taka þátt í óperuhátíð sem heitir Yo Opera og er ég að taka þátt í nútímaóperu um " the Financial crisis" mjög viðeigandi að vera Íslendingur í þessu hlutverki en ég er samviska bankamannsins. Finnst þetta mjög fyndið. Þetta verður bara mjög skemmtilegt. Það er allt á fullu við undirbúning fyrir tónleikana í næstu viku og það gengur bara vel. Og svo er ég að fá góða gesti því Halldóra og Hildur koma í næstu viku og svo kemur hann Eyvi minn þann 1. nóv, þvílík veisla af góðu fólki!
Annars gengur bara allt vel. Ég er farin að finna fyrir því að haustið er komið og svo breytist klukkan á sunnudaginn og þá kemur skammdegið en þa´kveiki ég bara á kertum og hef það kósi!
Læt vita hvað það er mikið að gera næst!
Kusjes een knuffel!
fimmtudagur, 22. október 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Gaman að heyra að allt gengur svona vel hjá þér Þórunn mín.
SvaraEyðaVildi óska að ég gæti komið í heimsókn bráðum, en það er plan að koma til Ams á vormánuðum.
Getum við ekki planað skype deit bráðum??
knús og kossar...
Regína
Loksins einhver að kommenta ;) Tónleikarnir gengu rosalega vel! Ég er bara mjög ánægð með þetta í heildina, auðvitað er alltaf eitthvað en þannig er það bara. Það var líka ótrúlega gaman að hafa Hildi og Halldóru í salnum , svona smá familí fyrir utan Nonna og Lottie auðvitað!
SvaraEyða