Það er allt gott að frétta af mér. Ég er búin að koma mér mjög vel fyrir í Jónshúsi og skólinn kominn á fullt. Ég er að vinna mikið í skólanum og svo eru farin að detta inn nokkur verkefni svona að öðru hvoru sem er alveg frábært. Mér er farið að líða eins og ég lifi "eðlilegu" lífi hérna. Ekki bara skólinn sem er svo verndað umhverfi en auðvitað miklar kröfur. Núna erum við að byrja á kammermúsik verkefni og er ég að flytja undurfagurt verk eftir Chausson, læt linkinn fylgja fyrir þá sem vilja hlusta :
http://www.youtube.com/watch?v=d2sJwkKmuYs&feature=related
Það eru svo tónleikar 30. okt og hlakka ég rosalega mikið til. Er líka að taka þátt í Messien verkefni og stjórnandi Nederlands kammerkoor kemur að hlusta svo hver veit hvað gerist. Söngtímarnir ganga rosalega vel og aukafögin eru líka skemmtileg. Mikið af tungumálum og skemmtilegum áföngum en verð nú að viðurkenna að analysis er ekki mitt uppáhaldsfag en ég læt mig hafa það. Er svo byrjuð að lesa nýja bók og það er svo flott tilvitnun í upphafi sem ég læt fylgja með.
" For yesterday is but a dream,
And tomorrow is only a vision;
But today well lived.
Makes every yesterday a dream of happiness,
And every tomorrow a vision of hope.
Look well therefore, to this day. "
Ætla að hafa þennan texta sem mottóið mitt!Hlakka til að halda áfram að segja ykkur frá ævintýrum mínum í Hollandi!
Þangað til næst.
Ykkar Þórunn

Æðislega gaman að sjá þessa nýju fínu bloggsíðu þína og lesa um ævintýri þín:)
SvaraEyðaKnús frá Íslandi,
Signý Björg
Gaman að þú sért byrjuð að blogga aftur sæta mín. Ég fylgist spennt með. Risa knús og óteljandi kossar frá okkur Kolfinnu :)
SvaraEyðaGaman að lesa blogg frá þér mín kæra, ég gerist áskrifandi...og svo bara 3 vikur :)
SvaraEyðajæja, mín bara farin að blogga, svolítið fyndið því ég kíkti í kvöld á gamla bloggið þitt til að tékka hvort eitthvað líf væri en í því, yndislegt og gaman að lesa. Svo er það bleiki liturinn, hvað annað...
SvaraEyðaÁstarkveðjur
Mamma
æ, hvað þetta var nú gott!
SvaraEyðakv.
gunna
Jei, frábært að þú vilt halda áfram að blogga. Styð það 100%.
SvaraEyðakossar og knús...
Regína
gaman að heyra frá þér :)
SvaraEyðaÖfunda þig smá að vera í Amsterdam, æðisleg borg en farðu nú samt varlega (e-n veginn held ég að mamma þín og systir hafi nú líka sagt þaðe-n tímann við þig ;)).
Talandi um systur þína, er ekki bara vit að senda analysis verkefnin í hana og biðja hana svo fallega um að blogga svolítið ;)