Mér finnst sunnudagar yndislegir dagar. Það er eitt af því besta sem ég veit að vera bara heima á sunnudegi, fá mér kaffi og ristað brauð. Baka kannski pönnukökur og kveikja á kerti. Þessi sunnudagur er búinn að vera yndislegur. Lottie kom í heimsókn og við vorum að spila víólu dúetta. Það var alveg dásamlegt, við erum nú ekki þær bestu en við komumst í gegnum þetta. Held að það hafi verið mjög skondið að vera fluga á vegg. Við erum að fara að spila fyrir hinar stelpurnar í bekknum á þriðjudaginn en þá ætlar hún að hafa svona söng dag heima hjá sér.
Annars gengur lífið sinn vana gang og er Erla hérna í heimsókn hjá mér. Alltaf skemmtilegt að fá gesti og gera svona ferðamanna hluti. Góð afsökun til að fara út að borða og svona. Það er komin mikil jólastemming í mig enda nóvember næstum á enda. Ætla að fara að hlusta á jólalögin að fullum kraftir á þriðjudaginn á afmælinu hennar Gróu.
Skólinn gengur vel og ég er ótrúlega ánægð með allt saman en á örugglega eftir að segja þetta í hverju einasta bloggi fram að jólum. Ég hlakka órúlega mikið til að koma heim!
Ástarkveðjur
Ykkar Þórunn Vala
sunnudagur, 22. nóvember 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli