
Hér er gagnrýni sem Eyvi skrifaði um sýninguna okkar í Yo Opera. Takk fyrir falleg orð!
Örópera gærkvöldsins að viðstöddu fjölmenni og sjálfum borgarstjóra Utrecht á mikið erindi við okkur frjálshyggjuviltan lýðinn. Ómstríð hljómasambönd sóprans, mezzos, baritóns, altflautu og sellós minntu á þann óhugnalega vef örlaganornanna sem margar vestrænar þjóðir hafa flækst í undanfarin misseri. Hvað er fallið annað en hátt og hart eftir syndasund græðginnar!? Stigagangur félagsmiðstövar Utrecht var hugvitsamlega nýttur sem umgjörð fyrir síðustu andadrætti veðbréfabraskaranna tveggja, sungin af mezzo og baríton. Þau hölluðu sér fram af handriðunum með skemmtilegum víratilfæringum á jakkafötunum með þeim árangri að manni fannst þau vera í frjálsu falli. Á gólfinu fyrir neðan var sakleysisleg yngismey í ljósbláum silkikjól sem hafði hlotið sömu örlög og biðu braskaranna. Ljóst sítt hárið hafði flyksast í allar áttir og hún lá þarna í feygð sinni eins og sakleysið og fegurðin sjálf, myrt af ofurhugsjónum nútímans. Stúlkan, sem sungin var af sópran, gekk aftur og söng draugkenndar strófur til fallandi jakafataplebbanna. Óp, viðskiptaleg gildismöt færð í tóna og hvassir og draumkenndir tónar sellósins og altflautunnar gáfu okkur innsýn inn í heim sem flestum er ókunnugur en hefur áhrif á okkur flest.
Bestu þakkir fyrir frábæran performans.

Þetta er aldeilis frábært elskan
SvaraEyðaTil hamingju með þetta
Ástarkveðjur
Mamma
já
SvaraEyða