Ég er komin aftur. Hef ákveðið að halda áfram að blogga. Það er svo ótrúlega gott að skrifa niður hugsanir sínar svona öðru hvoru og auðvitað láta alla vita hvernig gengur í stórborginni. En ég er semsagt flutt til Amsterdam og er því orðin stórborgardama enn á ný. Upplifði meira að segja Sex and the city augnablik í síðustu viku. Svaf næstum því yfir mig og hljóp út til að ná trammanum niðrá Centraal til að fara í söngtíma í Purmerend en það var trukkur á götunni og tarmminn reyndi að komast framhjá en því miður skrapaði alla hliðina á bílum, úps! Bílstjórinn var ekki glaður. Og hvað átti ég þá að gera, allavega ekki í boði að koma of seint í söngtíma svo ég bara steig út á götu og veifaði leigubíl í bleiku kápunni minn á háu hælunum. Ég legg þetta nú ekki í vana minn en þegar neyðin er sem mest ... alltaf sama dramatíkin í mér!
Það er allt gott að frétta af mér. Ég er búin að koma mér mjög vel fyrir í Jónshúsi og skólinn kominn á fullt. Ég er að vinna mikið í skólanum og svo eru farin að detta inn nokkur verkefni svona að öðru hvoru sem er alveg frábært. Mér er farið að líða eins og ég lifi "eðlilegu" lífi hérna. Ekki bara skólinn sem er svo verndað umhverfi en auðvitað miklar kröfur. Núna erum við að byrja á kammermúsik verkefni og er ég að flytja undurfagurt verk eftir Chausson, læt linkinn fylgja fyrir þá sem vilja hlusta :
http://www.youtube.com/watch?v=d2sJwkKmuYs&feature=related
Það eru svo tónleikar 30. okt og hlakka ég rosalega mikið til. Er líka að taka þátt í Messien verkefni og stjórnandi Nederlands kammerkoor kemur að hlusta svo hver veit hvað gerist. Söngtímarnir ganga rosalega vel og aukafögin eru líka skemmtileg. Mikið af tungumálum og skemmtilegum áföngum en verð nú að viðurkenna að analysis er ekki mitt uppáhaldsfag en ég læt mig hafa það. Er svo byrjuð að lesa nýja bók og það er svo flott tilvitnun í upphafi sem ég læt fylgja með.
" For yesterday is but a dream,
And tomorrow is only a vision;
But today well lived.
Makes every yesterday a dream of happiness,
And every tomorrow a vision of hope.
Look well therefore, to this day. "
Ætla að hafa þennan texta sem mottóið mitt!
Hlakka til að halda áfram að segja ykkur frá ævintýrum mínum í Hollandi!
Þangað til næst.
Ykkar Þórunn