Það er alltaf gott að getað vitnað í einhvern annan sér vitrari. Mér finnst þessi spakmæli mjög góð því maður getur víst verið með rætur og flogið.
En það er allt gott að frétta af mér. Var að syngja á tónleikum í gær. Við fluttu Petite Missa Solinelle eftir Rossini og söng ég sópran sólóin og kórinn var Bach kórinn í Nijmegen, mjög fínn kór. Við vorum öll sólistar úr skólanum og þar á meðal hann elsku Stefán. Það gekk rosalega vel og ég er mjög ánægð með þetta. Man ekki mikið eftir tónleikunum en það er víst best þegar það er þannig. Svo byrjar skólinn með reglulegri kennslu á morgun. Kammerkórinn er byrjaður að æfa Dallapiccola óperuna sem við erum að fara að taka þátt í í mars í hollensku óperunni. Þetta er mjög spennandi og krefjandi verkefin og ekki skemmir fyrir að komast með litlu tána inn í óperuna!
Ég er ótrúlega vel stefnd fyrir framhaldið og hlakka mikið til að vitna í fleiri spekinga og að segja ykkur hvernig lífið gengur hérna hjá mér á háaloftinu í Amsterdam.
Þangað til næst!
Ykkar Þórunn Vala
sunnudagur, 31. janúar 2010
Subscribe to:
Posts (Atom)
